Þjálfun og ráðgjöf

Greenfit styrktarþjálfun er áhrifarík og skemmtileg þjálfun fyrir þá sem vilja læra að hreyfa sig rétt, virkja og styrkja djúpvöðva sem og aðra vöðva líkamans.

Greenfit býður einnig uppá tíma í einkaþjálfun og fjarþjálfun í hlaupum, hjólreiðum og þríþraut.


Styktarþjálfun

Verð: 29.900 kr/mán

Greenfit æfingahópur með persónumiðaðri þjálfun.

Tímarnir byggjast upp á fjölbreyttan hátt þar sem hver og einn getur unnið eftir eigin getu í góðum og hvetjandi félagsskap – og henta því bæði byrjendum og lengra komnum.

Hvað er innifalið?

  • Aðgangur að hóptímum ásamt aðgangi að styrktarsal Greenfit hvenær sem er.

  • Mæling á líkamssamsetningu (vöðvamassa, fituprósentu og vökvastöðu).

  • Vikulegt fræðsluefni sem byggir á heilsusálfræði til að efla heilsuvenjur þínar og hugarfar.

  • Vildarkjör hjá samstarfsaðilum.

Úthalds- og hlaupaþjálfun

Verð: 10.900 kr/mán

Fáðu æfingaáætlun beint í símann þinn eða Garmin úrið og náðu þínum besta árangri!

Þú segir okkur hvaða markmiði þú stefnir að og við hjálpum þér að stilla æfingarnar af þannig að þú náir markmiðinu.

Þetta færðu í hlaupaprógramminu þínu:

  • Fjarþjálfun í gegnum TrainingPeaks þar sem við sendum allar æfingar í símann þinn eða Garmin úrið.

  • Þú getur stillt álagið í hlaupunum eftir niðurstöðum úr álagsprófi eða zones, og tryggt þannig hámarksárangur og æfingar á réttu álagi.


Heilsuráðgjöf

Verð: 14.900 kr

Heilsuráðgjöf hjá Greenfit er persónuleg ráðgjöf fyrir þá sem vilja ná markmiðum sínum og viðhalda heilsuvenjum til lengri tíma.

Ráðgjöfin felur í sér:

  • Skýra markmiðasetningu sem hentar þínum raunveruleika.

  • Greiningu á hegðun, venjum og umhverfi sem hafa áhrif á heilsu.

  • Smávenjur og einföld kerfi sem krefjast lítillar fyrirhafnar en hafa mikil áhrif.

  • Stuðning, leiðsögn og samtal – ekki boð og bönn.

Einkaþjálfun

Verð: 14.900 kr fyrir 60 mín

Einkaþjálfun hentar bæði þeim sem eru að koma sér af stað í hreyfingu og þeim lengra komnu. Áhersla er lögð á mikilvægi þess að framkvæma allar æfingar rétt og sérniðið prógram útbúið til að tryggja hverjum og einum sem bestan árangur. Einnig er í boði fyrir tvo til fjóra að vera saman í þjálfun.

Innifalið í einkaþjálfun hjá Greenfit er mæling á líkamssamsetningu (vöðvamassi, fituprósenta og vatnsbúskapur) og gripstyrk.

Áskriftarleiðir

Styrktarþjálfun

Mánaðaraðild að styrktarþjálfun

Hóptímar og aðgangur að styrktarsal, líkamsmælingar, heilsusálfræði og fræðsla, og vildarkjör hjá samstarfsaðilum.

29.900 kr/mán

Meðferðir

Mánaðaraðild að meðferðum

Mánaðaráskrift í allar meðferðir Greenfit: rauðljósameðferð, kuldameðferð og súrefnismeðferð.

29.900 kr/mán

Premium aðild

Styrktarþjálfun + Meðferðir

Mánaðaraðild að
þjálfun og
meðferðum Greenfit.

39.900 kr/mán