Heilsumælingar
Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta!
Heilsumælingar Greenfit gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna.
Niðurstöðurnar þínar eru aðgengilegar í gegnum tæknilausn Greenfit sem getur aukið heilsulæsi þitt og skilning á tengingu lífsstíls og heilbrigðs langlífis.
Ástandsskoðun
Ástandsskoðunin hjá Greenfit gefur þér góða mynd á helstu þætti heilsu sem hafa forspárgildi um heilbrigði og langlífi. Við förum yfir niðurstöðurnar með þér og hjálpum þér að setja raunhæf markmið – og ná þeim!
Greenfit býður upp á þrjár gerðir af ástandsskoðun:
Ástandsskoðun - 69.900 kr
Grunn blóðmæling
Blóðþrýstingur
Líkamssamsetning
Gripstyrkur
Efnaskipti og hitaeiningaþörf
Álagsmæling
Öndunarmæling
Ítarleg Ástandsskoðun - 109.800 kr
Grunn blóðmæling
Ítarleg blóðmæling
Blóðþrýstingur
Líkamssamsetning
Gripstyrkur
Efnaskipti og hitaeiningaþörf
Álagsmæling
Öndunarmæling
Minni ástandsskoðun - 29.900 kr
Blóðmæling
Blóðþrýstingur
Líkamssamsetning
Gripstyrkur
Blóðmælingar
Greenfit býður uppá tvenns konar blóðmælingar:
Ítarleg blóðmæling - 49.900 kr
Verð ef bætt er við ástandsskoðun: 39.900 kr
blóðsykur (fastandi og langtíma)
blóðfitur (heildar kólesteról, HDL-C, LDL-C og þríglýseríð)
helstu vítamín (A, D, E og B12)
ferritín, kopar, sínk, magnesíum og selen
amínósýrur og prótínafleiður
omega 3 fitusýrur
testosterone (kk) og streituhormón
Við metum með þér stöðuna og hjálpum þér að læra á þín eigin gildi, setja markmið og ná árangri.
Grunn blóðmæling - 12.900 kr
Við skoðum þá áhrifavalda heilsunnar sem við höfum sjálf hvað mest áhrif á með lífsstílstengdum þáttum,
blóðsykur (fastandi og langtíma)
blóðfitur (heildar kólesteról, HDL-C, LDL-C og þríglýseríð).
Við metum með þér stöðuna og hjálpum þér að læra á þín eigin gildi, setja markmið og ná árangri.
Álagspróf og aðrar stakar mælingar
Álagsmæling - 29.900 kr
Finndu út á hvaða álagi þú átt að æfa til að ná hámarksárangri. Við mælum hámarks súrefnisupptöku, þröskulda, fitubrennslu út frá púls og finnum út hvaða þættir eru takmarkandi í þinni þjálfun. Þekktu þín gildi og náðu betri árangri í æfingum.
Efnaskiptamæling - 24.900 kr
Viltu vita hversu mörgum hitaeiningum þú brennir á dag?
Efnaskiptamæling (RMR) segir þér hver grunnbrennslan í hitaeiningum er á sólarhring, hversu heilbrigð efnaskiptin eru og hvernig hlutföll kolvetna og fitu skiptast í grunnbrennslu.
Líkamssamsetning - 9.900 kr
Við notum viðurkennda og áreiðanlega aðferð til að mæla hlutfall vöðva og fitu í líkamanum.
Mæling á líkamssamsetningu segir þér raunverulega úr hverju þú ert!
Við mælum vöðvamassa, fituhlutfall, vökvastöðu, kviðfitu og fleira og skoðum með þér hvar tækifærin liggja.
Það besta? Þú getur fylgst með breytingum yfir tíma og séð hvernig líkaminn þróast með þér. Vöðvavefur er nefnilega ekki bara kraftur í dag – hann er lífeyrissjóður líkamans og lykill að orku, virkni og langlífi til framtíðar.
Nánar um mælingarnar
Blóðmælingar
Við skoðum þá áhrifavalda heilsunnar sem við höfum sjálf hvað mest áhrif á með lífsstílstengdum þáttum, blóðsykur og blóðfitur. Við metum með þér stöðuna og hjálpum þér að læra á þín eigin gildi, setja markmið og ná árangri.
Grunnefnaskiptamæling
Grunnefnaskiptamæling (RMR; resting metabolic rate) segir þér hver grunnbrennslan er á sólarhring og hvernig hlutföll kolvetna- og fitu skiptast. Viltu vita hve mörgum hitaeiningum þú brennir á dag? Þá er grunnefnaskiptapróf fyrir þig. Mælingin tekur 30 mín.
Álagsmæling
Finndu út á hvaða álagi þú átt að æfa til að ná hámarksárangri. Við mælum hámarks súrefnisupptöku, þröskulda, fitubrennslu á púls og finnum út hvaða álag á æfingum færir þig hraðast nær þínu markmiði. Þekktu þín gildi og náðu betri árangri í æfingum. Mælingin tekur 30 mín.
Öndunarmæling
Við metum öndunargetu sem notast sem grundvöllur fyrir álagsmælingu.
Líkamssamsetning
SECA 555 er nákvæmt mælitæki á líkamssamsetningu. Í þessari mælingu færðu upplýsingar um vöðvamassa, fituhlutfall, kviðfitu og fleiri þætti. Þú færð þínar eigin tölur og samanburð við jafnaldra af sama kyni og getur lært að meta í hvaða átt heilsa þín er að þróast. Mælingin tekur 15 mín.
Gripstyrkur
Það er áhugavert hve mikið forspárgildi gripstyrkur hefur um heilbrigði og langlífi. Við mælum gripstyrk beggja handa og berum saman við jafnaldra af sama kyni og líkur á langri heilbrigðri ævi.